Forsíða | Stöð 2 (original) (raw)
Sportpakkinn
Flamingó bar
Golfarinn
Stöð 2+ með eða án auglýsinga
Fréttir
Fréttatími Stöðvar 2 í opinni dagskrá.
Besta deildin
Sportpakkinn
Flamingó bar
Vandað sjónvarpsefni á Stöð 2 og Stöð 2+
Flamingó bar
Hefst 23.ágúst
Flamingó bar eru nýir sprenghlægilegir þættir þar sem vinirnir Bjarki og Tinna Olsen taka ákvörðun um að kaupa subbulegann bar sem er við það að fara á hausinn. Ásamt breyskum starfsmönnum ætla þau að breyta ímynd barsins og snúa rekstrinum við. Vafasamir fastagestir, óvæntar uppákomur og gestir gera þeim virkilega erfitt fyrir. Tekst þeim að bjarga barnum og vinna úr eigin brestum?
Golfarinn
Sunnudaga
Skemmtilegur þáttur um allar hliðar golfiðkunar. Í þættinum er bæði fjallað um afrekskylfinga sem og hinn almenna kylfing. Fólki gefin góð ráð um hvernig það megi bæta sinn leik og farið í skemmtilegar þrautir. Fáum fólk sem aldrei hefur spilað golf til að keppa sína á milli, lærum nýju golfreglurnar og margt fleira skemmtilegt.
Sveitarómantík
Nýir og skemmtilegir þættir í umsjón Ásu Ninnu í þáttunum fáum við að fylgjast með sex pörum á mismunandi aldri sem eiga það sameiginlegt að búa í sveit. Við fáum að skyggnast inn í daglegt líf paranna og heyra frá ástarsögu þeirra, fortíð og framtíðardraumum en fyrst og fremst upplifa rómantíkina í hversdeginum.
Helvítis kokkurinn
Fimmtudaga
Ívar Örn Hansen er kallaður helvítis kokkurinn og hann gerir fyrst og fremst svakalega bragðgóðan mat. Ein uppskrift tekin fyrir í hverjum þætti.
STREYMISVEITAN STÖÐ 2+
Stöð 2+ inniheldur mikið af hágæða efni fyrir alla fjölskylduna. Þar er að finna fjöldann allan af íslenskum og erlendum þáttaröðum, vönduðu talsettu barnaefni og úrval kvikmynda fyrir alla fjölskylduna. Kynntu þér úrvalið...