Ranghugmynd (original) (raw)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

(Endurbeint frá Blekking)

Ranghugmynd eða haldvilla (einnig „hugvilla“, „blekking“ eða „uppspuni“) er þrálát ímyndum í mótsögn við augljósar staðreyndir. Ranghugmynd er þannig hugmynd sem stendur á veikum grunni, stenst ekki skoðun, en sem einstaklingur trúir innilega þrátt fyrir gögn um hið gagnstæða. Ranghugmyndir verða til þegar viðkomandi hrapar of fljótt að ályktunum.[1]: 11 Í sjúkdómafræði er ranghugmynd eða haldvilla aðgreind frá trú sem byggist á röngum eða ófullnægjandi upplýsingum þar sem einstaklingar með slíka trú geta breytt eða endurskoðað trú sína við endurskoðun staðreynda.

Ranghugmynd getur til dæmis snúist um að viðkomandi sé eltur eða að einhver vilji eitra fyrir viðkomandi. Þá er talað um ofsóknarkennd. Einhver gæti til dæmis haldið að í næsta herbergi sé einhver sem vill vinna viðkomandi mein og þrátt fyrir að viðkomandi sé sýnt tómt herbergið trúir hann enn hugmyndinni. Annað dæmi er framhjáhald; viðkomandi trúir að maki sinn sé ótrúr þrátt fyrir að engin sönnunargögn styðji slíkt.[1]: 11

Ranghugmyndir eru einkenni á ýmsum geðsjúkdómum eins og geðklofa, ofsóknaræði, geðhvarfasýki og þunglyndi. Erfitt er að meðhöndla ranghugmyndir, en stundum er hægt að nota geðrofslyf. Ef ranghugmynd stofnar manneskjunni eða öðru fólki í hættu getur viðkomandi einnig verið meðhöndlaður gegn vilja þeirra.[_heimild vantar_]

Ranghugmyndum er skipt í fyrsta og annars stigs ranghugmyndir. Fyrsta stigs ranghugmyndir eru skyndihugmyndir sem viðkomandi trúir innilega. Þær eru sjaldgæfar og erfitt að greina þær því viðkomandi man ekki hvernig þær komu til. Dæmi er um að sjúklingur haldi skyndilega að hann sé að breyta um kyn, en man ekki hvenær tilfinningin kom fyrst fram og enginn atburður í lífi viðkomandi skýrir hugmyndina.

Annars stigs ranghugmyndir birtast í kjölfarið á einhverjum atburði í lífi viðkomandi, sem skýrir að einhverju leyti ranghugmyndina; hann eða hún heyrir raddir og dregur þá ályktun að sér sé veitt eftirför; sjúklingur í djúpu þunglyndi telur sig einskis virði fyrir öðrum; eða einhver félítill telur sig eiga von á fangavist vegna ógreiddra skulda.[1]: 11

Til eru nokkrar gerðir ranghugmynda:

  1. 1 2 3 4 Geddes, John; Gelder, Michael; Mayou, Richard (2001). Psychiatry. Oxford Univesity Press. ISBN 0192628887.