23. september (original) (raw)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
| Ágú – September – Okt | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
| 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
| 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
| 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
| 27 | 28 | 29 | 30 | |||
| 2026Allir dagar |
23. september er 266. dagur ársins (267. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 99 dagar eru eftir af árinu.
1241 - Snorri Sturluson, skáld, rithöfundur, goðorðsmaður og lögsögumaður, var veginn í Reykholti í Borgarfirði.
1459 - Fyrsta orrusta Rósastríðanna í Englandi, bardaginn á Blore Heath, átti sér stað.
1608 - Umsátur pólska hersins um Þrenningarklaustur heilags Sergíusar hófst.
1699 - Almyrkvi sólar sást í Evrópi, Miðausturlöndum og Norður-Indlandi.
1722 - La Nouvelle-Orléans (New Orleans) varð fyrir fellibyl. Margar opinberar byggingar eyðilögðust.
1906 - Hornsteinn var lagður að húsi landsbókasafnsins á Arnarhólstúni í Reykjavík.
1906 - Elsta heildverslun Íslands tók til starfa, heildverslun Ó. Johnson og Kaaber.
1922 - Oddur Oddsson, 74 ára og Oddný Hannesdóttir, níræð, voru gefin saman í Reykjavík og varð hún þar með elsta brúður landsins.
1932 - Ibn Sád sameinaði ríkin Nejd og Hejaz og bjó til Sádí-Arabíu.
1941 - Snorrahátíð haldin í hátíðarsal Háskóla Íslands í minningu 700 ára dánarafmælis Snorra Sturlusonar.
1943 - 270 kjósendur afhentu Alþingi áskorun um að ganga ekki frá sambandsslitum við Dani eins og á stæði.
1963 - Eggert Gíslason skipstjóri á Sigurpáli GK, setti met í síldarafla. Á einu sumri hafði hann aflað 31.439 mál og tunnur.
1963 - Badmintondeild KR var stofnuð.
1965 - Vopnahlé tók gildi milli Indlands og Pakistans.
1973 - Yfir Suðvesturland gengu leifar fellibylsins Ellenar og olli veðrið miklu tjóni á húsum, bátum og bílum. Í Reykjavík náði vindhraði 200 kílómetrum á klukkustund.
1981 - Hornsteinn var lagður að Þjóðarbókhlöðunni í Reykjavík.
1982 - Amine Gemayel var kosinn forseti Líbanon.
1983 - Gulf Air-flug 771 hrapaði í Sameinuðu arabísku furstadæmunum eftir að sprengja sprakk í farangursrými. 117 létust.
1985 - Blaðamaðurinn Giancarlo Siani var myrtur af glæpasamtökunum Camorra.
1988 - Kvikmyndin Í þokumistrinu var frumsýnd.
1989 - Borgarastyrjöldin í Líbanon: Vopnahlé tók gildi.
1993 - Nýr flugvöllur var tekinn í notkun á Egilsstöðum. Flugbrautin er 2000 metra löng og kostaði völlurinn 790 milljónir króna.
1994 - Á Öxnadalsheiði var afhjúpað minnismerki í tilefni af því að bundið slitlag var komið á allan þjóðveginn á milli Reykjavíkur og Akureyrar.
1995 - Argentínumaðurinn Bill Gaede var handtekinn í Arisóna og kærður fyrir iðnaðarnjósnir.
2002 - Banni við einnota drykkjarumbúðum var aflétt í Danmörku.
2008 - 11 létust í skotárás á skóla í Kauhajoki í Finnlandi.
2009 - Ræningjar rændu peningageymslu öryggisfyrirtækisins G4S í Västberga syðst í Stokkhólmi. Ræningjarnir notuðu meðal annars bæði þyrlu og sprengiefni.
2019 - Rússland lögfesti Parísarsamkomulagið.
2024 - Ísrael gerði yfir 1.000 loftárásir á suður-Líbanon sem beindust gegn Hezbollah. Um 500 létust.
1158 - Geoffrey 2. hertogi af Bretagne (d. 1186).
1215 - Kúblaí Khan Mongólaveldisins (d. 1294).
1838 - Victoria Woodhull, bandarísk kvenréttindakona og forsetaframbjóðandi (d. 1927).
1880 - John Boyd Orr, skoskur næringarfræðingur og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1971).
1883 - Inga Lára Lárusdóttir, íslensk stjórnmálakona (d. 1949).
1883 - Grígoríj Zínovjev, sovéskur stjórnmálamaður (d. 1936).
1901 - Jaroslav Seifert, tékkneskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1986).
1913 - Tokutaro Ukon, japanskur knattspyrnumaður (d. 1944).
1920 - Mickey Rooney, bandarískur leikari (d. 2014).
1922 - Einar Ágústsson, íslenskur stjórnmálamaður (d. 1986).
1925 - George J. Laurer, bandarískur verkfræðingur.
1930 - Ray Charles, bandarískur söngvari (d. 2004).
1937 - Martin West, enskur fornfræðingur (d. 2015).
1940 - Michel Temer, brasilískur stjórnmálamaður.
1949 - Bruce Springsteen, bandarískur söngvari.
1951 - Shehbaz Sharif, pakistanskur stjórnmálamaður.
1956 - Paolo Rossi, ítalskur knattspyrnumaður.
1959 - Elizabeth Peña, bandarísk leikkona (d. 2014).
1959 - Jason Alexander, bandarískur leikari.
1967 - Masashi Nakayama, japanskur knattspyrnumaður.
1968 - Erik Weihenmayer, bandarískur fjallgöngumaður.
1973 - Toshihiro Hattori, japanskur knattspyrnumaður.
1973 - Gíorgos Lanþímos, grískur kvikmyndagerðarmaður.
1979 - Fábio Simplício, brasilískur knattspyrnumaður.
1988 - Shannon Chan-Kent, kanadísk leikkona.
867 - Mikael 3. keisari Austrómverska ríkisins (f. 839).
1241 - Snorri Sturluson, íslenskur rithöfundur (f. 1179).
1253 - Venseslás 1., konungur Bæheims.
1666 - Hannibal Sehested, fyrrum ríkisstjóri Noregs (f. 1609).
1825 - Pedro Marieluz Garcés, perúskur prestur (f. 1780).
1870 - Prosper Mérimée, franskur rithöfundur (f. 1803).
1882 - Friedrich Wöhler, þýskur efnafræðingur (f. 1800).
1896 - Ivar Aasen, norskur málvísindamaður (f. 1813).
1939 - Sigmund Freud, austurrískur geðlæknir (f. 1856).
1943 - Ernst Trygger, sænskur stjórnmálamaður (f. 1857).
1973 - Pablo Neruda, síleskt skáld (f. 1904).
2017 - Örn Ingi Gíslason, íslenskur myndlistarmaður (f. 1945).