Skógur (original) (raw)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útbreiðsla skóga um heiminn.
Handewitter-skógur í Norður-Þýskalandi.
Skógur er vistkerfi með ríkjandi trjágróðri sem þekur að minnsta kosti 1 hektara og að þekju-hlutfall fullorðinna trjáa sem eru að minnsta kosti 2 metra há sé um og yfir 10%. Séu trén lægri en 2 metrar að hæð kallast þau kjarr. Þetta er skilgreining skógasviðs FAO[1] að öðru leyti en því að þar er gert ráð fyrir að hæð fullorðinna trjáa sé 5 metrar. Skógar hafa mikil áhrif á umhverfi sitt og skapa meðal annars kyrrara loftslag og svokallað nærloftslag (enska: microclimate). Auk þess bindur skógurinn loftraka, mengunarefni og rykagnir úr loftinu, temprar vatnsrennsli á leið til sjávar, dregur úr hávaða í þéttbýli og skapar verðmætar auðlindir sem eru óþrjótandi ef þær eru nýttar með sjálfbærum hætti.
Um 2% landsins eru vaxin skógi og kjarri. Birkiskógar telja þar mest en ræktaðir skógar með barrtrjám eru um fjórðungur af heildartölunni. Sitkagreni, stafafura og rússalerki hafa þrifist best. Þau eru meðal trjáa sem hafa náð yfir 20 metra hæð og er sitkagreni um 30 metrar hæst. [2]
hlíðþang - er forn kenning í skáldamáli og þýðir skógur.
holt - þýddi í fornu máli skógur, sbr: sjá í gegnum holt og hæðir. Holtriði var orð haft um þann sem bjó í skógi.
lundur - þýðir skógarlundur eða trjáþyrping.
myrkviður - er myrkur margslunginn skógur.
mörk - þýðir skógur, sbr.: dýr merkurinnar og Þórsmörk.
Fyrsta bókin sem kom út um skógrækt á Íslandi hét: Skógurinn og æskulýðurinn (norska: Skogen for de unge) og kom út árið 1938. Hún var eftir hinn norska Chr. Gjerlöff, sem var rithöfundur og skipulagsfræðingur. [3] [4]
- ↑ https://www.fao.org/docrep/006/ad665e/ad665e06.htm
- ↑ Tvö prósent Íslands er nú þakið skógi og kjarriVísir, sótt 3. apríl 2022
- ↑ „Morgunblaðið 1938“. Afrit af upprunalegu geymt þann 22 júlí 2011. Sótt 15. september 2008.
- ↑ Gegnir.is[_óvirkur tengill_]
- Skógræktin; heimasíða Skógræktarinnar
- Um sögu skóganna á Íslandi; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1959 Geymt 28 júlí 2011 í Wayback Machine
- Um stefnu skógræktarmála og framkvæmd þeirra næstu áratugi; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1944[_óvirkur tengill_]
- Íslandsskógar; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1999[_óvirkur tengill_]
- Menn og skógur; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1971 Geymt 28 júlí 2011 í Wayback Machine
- Skógar; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1928[_óvirkur tengill_]
- Barrskógur á Íslandi; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1947[_óvirkur tengill_]
- [Hringrásirnar í skóginum - Kjarnaskogur.is