skuggi - Wikiorðabók, frjálsa orðabókin byggð á wiki-kerfinu (original) (raw)

Úr Wikiorðabók, frjálsu orðabókinni

Íslenska

Fallbeyging orðsins „skuggi“
Eintala Fleirtala
án greinis með greini án greinis með greini
Nefnifall skuggi skugginn skuggar skuggarnir
Þolfall skugga skuggann skugga skuggana
Þágufall skugga skugganum skuggum skuggunum
Eignarfall skugga skuggans skugga skugganna
Önnur orð með sömu fallbeygingu

Nafnorð

skuggi (karlkyn); veik beyging

[1] hvorki ljósdimma

[2] forsæla, skuggamynd

[3] myndrænn: hryggð

[4] vofa

Samheiti

[2] forsæla

Andheiti

[1] ljós, sól, sólskin

Orðtök, orðasambönd

[2] vera aðeins skugginn af sjálfum sér, vera bara skugginn af sjálfum sér, vera nema skugginn af sjálfum sér/ vera ekki nema skugginn af sjálfum sér

[2] vera ekki skugginn af sjálfum sér

varða skugga á eitthvað

Afleiddar merkingar

skuggaafl, skuggahlið, skuggahverfi, skuggalegur, skuggamynd, skuggasæll (skuggsæll), skuggsjá, skuggsýnn

Sjá einnig, samanber

skyggni

Dæmi

[2] „Hljóðlát eins og skuggi, sagði hún við sjálfa sig, létt eins og fjöður.“ (Krúnuleikar, George R.R. MartinWikiorðabók:Bókmenntaskrá#Krúnuleikar, George R.R. Martin: [bls. 359 ])

Þýðingar

Tilvísun

„**Skuggi**“ er grein sem finna má á Wikipediu.
Icelandic Online Dictionary and Readings „skuggi