hjarta - Wikiorðabók, frjálsa orðabókin byggð á wiki-kerfinu (original) (raw)

Úr Wikiorðabók, frjálsu orðabókinni

Íslenska

Nafnorð

Fallbeyging orðsins „hjarta“
Eintala Fleirtala
án greinis með greini án greinis með greini
Nefnifall hjarta hjartað hjörtu hjörtun
Þolfall hjarta hjartað hjörtu hjörtun
Þágufall hjarta hjartanu hjörtum hjörtunum
Eignarfall hjarta hjartans hjartna hjartnanna
Önnur orð með sömu fallbeygingu

hjarta (hvorugkyn); veik beyging

[1] Líffæri, vöðvi, sem sér um að dæla blóði eftir æðakerfinu.

[1a] myndrænt: um tilfinningu

[2] Tákn, ♥, sem líkist líffærinu hjarta.

[3] (Í spilum) litur, sort eða tegund spila (hjarta, spaði, tígull, lauf). Það eru þrettán af hverri sort, samtals 52 spil.

[4] Einhver sem þér er annt um

[5] Miðja eða kjarni einhvers

Framburður

IPA: [hj̊ar̥.ta], [çar̥.d̥a]

Orðtök, orðasambönd

[1] fá fyrir hjartað

[1a] einhverjum liggur eitthvað á hjarta, einhverjum liggur eitthvað þungt á hjarta

[1a] hafa ekki hjarta til einhvers

[1a] hafa gott hjarta

[1a] hafa hjartað á réttum stað

[1a] hugsa með hjartanu

[1a] létta þungum steini af hjarta einhvers

[1a] vera með hjartað í buxunum

Afleiddar merkingar

[1] hjartsláttur, hjartastopp, hjartastilling

Dæmi

[4] Elsku besta hjartað mitt!

[5] Ég bý í hjarta borgarinnar.

Þýðingar

þýðingar

astekíska: yolotl [1] (nah) danska: hjerte [1] (da) eistneska: süda [1] (et) enska: heart [1] (en) franska: cœur [1] (fr) frísneska: hert [1] (fy) galisíska: corazón [1] (gl) hollenska: hart [1] (nl) ítalska: cuore [1] (it) latína: cor [1] (la) norska: hjerte [1,2,5] (no), hjarte [1,2,5] (no), hjarta [1,2,5] (no), hjarter [3] (no), hjerter [3] (no) papíamentó: kurason [1] (pap) slóvakíska: srdce [1] (sk) spænska: corazón [1] (es) sænska: hjärta [1] (sv) tékkneska: srdce [1] (cs) þýska: Herz [1-5] (de)

Tilvísun

„**Hjarta**“ er grein sem finna má á Wikipediu.
Icelandic Online Dictionary and Readings „hjarta

Færeyska

Nafnorð

hjarta (hvorugkyn)[[Flokkur:Lua villa í package.lua, línu 80: module 'Module:table/getUnprotectedMetatable' not found. hvorugkynsnafnorð]]

[1] hjarta

Framburður

Tilvísun

„**Hjarta**“ er grein sem finna má á Wikipediu.

Norska

Nafnorð

hjarta (hvorugkyn)[[Flokkur:Lua villa í package.lua, línu 80: module 'Module:table/getUnprotectedMetatable' not found. hvorugkynsnafnorð]]

[1] hjarta

Framburður

Tilvísun

„**Hjarta**“ er grein sem finna má á Wikipediu.

Flokkar: