straumur - Wikiorðabók, frjálsa orðabókin byggð á wiki-kerfinu (original) (raw)

Íslenska

Fallbeyging orðsins „straumur“
Eintala Fleirtala
án greinis með greini án greinis með greini
Nefnifall straumur straumurinn straumar straumarnir
Þolfall straum strauminn strauma straumana
Þágufall straumi strauminum straumum straumunum
Eignarfall straums straumsins strauma straumanna
Önnur orð með sömu fallbeygingu

Nafnorð

straumur (karlkyn); sterk beyging

[1] fljót sem flæðir

[2] rennsli vatns

[3] eitthvað sem flæðir

[4] rafstraumur

[5] í fleirtölu: sjávarfall

Orðsifjafræði

norræna straumr

Framburður

IPA: [ströyːmʏr̥]

Orðtök, orðasambönd

[2] stríður straumur

[3] berast með straumnum

Afleiddar merkingar

[2] Golfstraumur, pólstraumur

[3] meginstraumur

[4] jafnstraumur, rakstraumur, riðstraumur

[5] stórstraumur

Þýðingar

[breyta]

þýðingar

enska: stream [1] (en) þýska: Strom [1,3,4] (de), Strömung [2,3] (de), Gezeiten [5] (de)

Tilvísun

„**Straumur**“ er grein sem finna má á Wikipediu.
Icelandic Online Dictionary and Readings „straumur